Heim
Vörur
Óskalisti0

MAUS WiFi reykskynjari – Samtengjanlegur

Húsin okkar brenna til grunna 8 sinnum hraðar og skilja eftir sig 200 sinnum meira eitraðan reyk en þau gerðu fyrir 30 árum, sem þýðir að það er mikilvægt að greina eldsupptök snemma til að bjarga lífum. Þessi fótóelektríski, þráðlausi og nettengdi reykskynjari lætur vita með háværri 85 dB viðvörun, blikkandi ljósi og tilkynningu í snjallsíma svo þú verðir brunans var í tíð og jafnvel þegar þú ert ekki á staðnum. Það klókasta við MAUS Rauch reykskynjarann er að þú getur stýrt honum, jafnvel þegar þú ert ekki á staðnum. Hvort sem hann er í bátnum, kjallaranum eða hjólhýsinu/húsbílnum, hefur þú fulla yfirsýn yfir alla reykskynjarana í einföldu snjallforrit (Tuya). Reykskynjarinn fellur vel inn í hvaða það rými sem þú setur hann upp í og mælt er með að hafa reykskynjara í hverju herbergi.

8.990 kr.

Vörunúmer:6001-1

Hvernig setja á upp snjalla reykskynjarann

  • Náðu í Tuya (www.tuya.com) eða Smart Home appið og fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu þar.
  • Settu inn báðar rafhlöðurnar í MAUS reykskynjarann.
  • Festu hlífina yfir rafhlöðurnar og gakktu úr skugga um að hún sé vel fest.
  • Skrúfaðu eða límdu botnplötuna (grá að lit) á sléttan flöt, þar sem þú vilt staðsetja reykskynjarann. Veldu staðsetningu sem er að minnsta kosti 50 cm frá næsta vegg eða innréttingu.
  • Festu reykskynjarann á gráu botnplötuna og snúðu svo reykskynjarinn festist á botnplötuna.
  • Prófaðu virkni reykskynjarans með því að þrýsta á þar til gerðan hnapp (stendur MAUS rauðum stöfum).
  • Fylgdu skrefunum í notkunarleiðbeiningunum til að samtengja reykskynjarann og appið svo þú fáir tilkynningar í snjallsíma ef elds verður vart eða skipta þarf um rafhlöður.
Vara hefur verið sett í körfuna þína