Heim
Vörur

Almennir skilmálar


Ábyrgðir

  • Góðkaup.is – Amenic ehf. ber alfarið ábyrgð á gæðum og þjónustu allra vara sem Góðkaup.is – Amenic ehf. – selur og ber kaupanda að leita úrlausnar sinna mála til Amenic ehf.
  • Ábyrgð á rafhlöðum er 6 mánuðir.
  • Ábyrgð á raftækjum sem seld eru til fyrirtækja er 1 ár.
  • Ábyrgð á dælubúnaði og stjórnkerfum heitra potta er 1 ár.


Greiðsla:

Hægt er að greiða vörur í vefversluninni með eftirfarandi hætti:
Greiðslukort: Með VISA eða MASTERCARD í gegnum örugga greiðslusíðu SaltPay
Netgíró: Í gegnum örugga greiðslusíðu Netgíró.
Aur: Með öruggri greiðsluleið Aur.
Pei: Með öruggir greiðsluleið Pei.


Afhending og afgreiðsla

Góðkaup.is veitir eftirfarandi þjónustu við afhendingu: Heimsendingar með Íslandspósti, heimsending með Flytjanda, sótt til Góðkaup.is eða heimsending á vegum Góðkaup.is. Vörur sem eru yfir ákveðinni stærð t.d. heitir pottar eru afhentar eftir samkomulagi. Í þeim tilfellum hefur seljandi samband við kaupanda um afhendingu. Við frágang vörukaupa velur kaupandi afhendingarmáta.

Góðkaup.is sendir frá sér vörur alla virka daga og eg fer afhendingartími því eftir landsvæðum en afhendingartími fer ekki yfir 5 virka daga. Afhendingartími á magntilboðum er tilgreindur hverju sinni á vörusíðu viðkomandi vöru.

Sendingarkostnaður er eftir verðskrá flutningsaðila og er tilgreindur við vörukaup í greiðsluferli.


Verð

Verð á vefsíðunni og í útsendum póstum eru með virðisaukaskatti samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og upplýsingum frá söluaðila og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Góðkaup.is er í einstökum tilfellum heimilt að breyta verði vöru eða þjónustu en þá aðeins til lækkunar.


Skilaréttur

  • Hafi vara verið keypt hjá Góðkaup.is og ekki afhent hefur viðskiptavinur ávallt rétt á að hætta við kaupin gegn endurgreiðslu.
  • Eftir að vara er afhent hefur kaupandi 14 daga til að skila ógallaðri vöru í óopnuðum umbúðum gegn endurgreiðslu. Vara skal vera ónotuð og í upprunalegum og söluhæfum umbúðum. Sýna þarf fram á að varan sé keypt í gegnum Góðkaup.is með framvísun greiðslukvittunar.
  • Hægt er að skila ógallaðri og ónotaðri vöru í söluhæfum umbúðum í 2 mánuði frá kaupum gegn inneign á Góðkaup.is. Framvísa þarf greiðslukvittun.
  • Skilaréttur gildir ekki um vöru sem sérsniðin er að kaupanda, t.d.ef rafmagnspotti er breytt í hitaveitupott eða með sérmerkingu eða prentun persónulegrar ljósmyndar.
  • Ekki er hægt að skila veitingum, matvöru eða þjónustu sem Góðkaup.is veitir.
  • Kaupandi greiðir allan kostnað við að koma vörunni til Amenic ehf. á Selfoss.


Almennt

Eftirfarandi skilmálar gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefnum Góðkaup.is. Skilmálarnir, sem samþykktir eru með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að viðskiptunum. Um öll þau kaup og viðskipti sem koma til með að eiga sér stað fyrir milligöngu Góðkaup.is gilda þau landslög sem eiga við hverju sinni.

Kaupandi, samkvæmt skilmálum þessum, er einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu fyrir milligöngu Góðkaup.is utan atvinnustarfsemi.

Seljandi, samkvæmt skilmálum þessum, er sá aðili sem selur þá vöru eða þjónustu sem um ræðir fyrir milligöngu gjafvara.is.

Upplýsingar um seljanda:
Amenic ehf. kt: 5410154180 Austurvegi 21, 800 Selfossi.
Vsk. nr. 122231


Verslunarskilmálar

Þau verð sem koma fram á Góðkaup.is – Revolution ehf. eru með virðisaukaskatti. Góðkaup.is – Revolution ehf. áskilur sér allan rétt til að breyta verðum eða taka tilteknar vörur eða vöruflokka úr sölu..

Öll verð á vefsíðunni og útsendum póstum eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur.

Skilmálar þessir ákvarðast af Góðkaup.is – Revolution ehf. og koma fram á vefsíðunni www.godkaup.is sem og á fylgiskjölum kvittunar. Góðkaup.is – Revolution ehf. vekur sérstaka athygli á því að þessir skilmálar gilda einungis um viðskipti kaupanda við Góðkaup.is.

Ef það kemur fram galli í vörum sem Góðkaup.is – Revolution ehf. selur þá, ef galli er tilkominn vegna einhvers sem rekja má til Góðkaup.is, rekstaraðila síðunnar eða aðila á hans vegum, þá á kaupandi rétt á að fá bætt úr gallanum í samræmi við almennar reglur sem gilda um þau viðskipti. kaupandi skal upplýstur um alla galla innan 3 daga frá móttöku keyptrar vöru og mun Góðkaup.is – Revolution ehf. upplýsa kaupanda um úrbætur vegna gallans innan 30 daga frá því að kaup eiga sér stað.

Ef kaupandi fær ekki afgreidda þá vöru eða þjónustu sem keypt er þá veitir það kaupanda tilkall til, innan þeirra tímamarka sem fram koma á Góðkaup.is – Revolution ehf. á kaupandi rétt á endurgreiðslu.


Trúnaðarupplýsingar

Góðkaup.is – Revolution ehf. heitir Kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem Kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Um meðferð allra persónuupplýsinga fer í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd. Persónuupplýsingar eru geymdar í gagnagrunni Góðkaup.is.. Aðeins eigendur og umsjónaraðilar vefsins hafa aðgang að þeim og utan þess sem krafist er til að koma á viðskiptum milli söluaðila og viðskiptavina síðunnar eru þær aldrei veittar þriðja aðila.

Öll vinnsla kreditkortanúmera á Góðkaup.is – Revolution ehf. er dulkóðuð og fara þær upplýsingar í gegnum heimasvæði Borgunar. Þegar kaupandi staðfestir kaup á Góðkaup.is – Revolution ehf. er heimild fengin fyrir viðkomandi upphæð.

Ágreiningur: 

Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Suðurlands skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.

Gildistími

Skilmálar þessir gilda frá 1. janúar 2020.

Vara hefur verið sett í körfuna þína