Heim
Vörur
Óskalisti0

MAUS Stixx Pro V5

MAUS Stixx PRO V5 er sjálfvirkt eldvarnatæki sem slekkur eldinn áður en hann dreifir sér. 

Þessa verðlaunuðu uppfinningu er hægt að setja upp í hvaða litla rými sem er, þar sem eldur getur komið upp. Það fer sjálfkrafa í gang við 170°C hita og fyllir rýmið af kalíumríkum reyk sem gleypir í sig hitann, truflar efnaferla í brunanum og slekkur með því eldinn. PRO V5 fimmfalt öflugra en PRO.

Eldsupptök verða í rafmagnstöflum af mismunandi ástæðum. Lélegar rafleiðslur, brotnir og gallaðir íhlutir, of lausar eða fastar tengingar, eldingar, gamlar rafleiðslur, yfirspenna og margt fleira geta valdið hættu á eldsvoða sem geta verið lífshættulegir.

59.990 kr.

Vörunúmer:135X-1-1

Tæknin að baki MAUS Stixx Pro

Eldvarnir þróaðar fyrir geimferðir

Fasta efnið samanstendur aðallega af kalíumsameindum. Kalíumsindurefni eru mjög virk og trufla efnabruna með því að hlutleysa vetnis-, súrefnis- og hýdroxíðsindurefni í eldinum. Þar sem agnúðar innihalda örsmáar agnir í gasi verða áhrifin mun skilvirkari við slökkvistarf en hefðbundin duftslökkvitæki. Fallhraði agnanna minnkar með minna þvermáli og yfirborðsflatarmálið verður stórt í hlutfalli við þyngd agnanna sem leiðir til þess að loftmótstaðan verður tiltölulega mikil í samanburði við þyngdarkraftinn. Þetta leiðir til þess að agnirnar svífa lengur og draga því úr líkum á að eldurinn skjóti aftur rótum.  Slökkvikrafturinn á þyngdareiningu er á milli 3-10 sinnum meiri en fyrir halon og koltvísýring (CO2).

Vara hefur verið sett í körfuna þína