Heim
Vörur
Óskalisti0

MAUS Stixx Pro

MAUS Stixx PRO er sjálfvirkt eldvarnatæki sem slekkur eldinn áður en hann dreifir sér. 

Þessa verðlaunuðu uppfinningu er hægt að setja upp í hvaða litla rými sem er, þar sem eldur getur komið upp. Það fer sjálfkrafa í gang við 170°C hita og fyllir rýmið af kalíumríkum reyk sem gleypir í sig hitann, truflar efnaferla í brunanum og slekkur með því eldinn.

Sjálft tækið er minna en yfirstrikunarpenni að stærð og er því hægt að setja upp hvar sem er sem hluta af fyrirbyggjandi eldvörnum. Eldsupptök verða í rafmagnstöflum af mismunandi ástæðum. Lélegar rafleiðslur, brotnir og gallaðir íhlutir, of lausar eða fastar tengingar, eldingar, gamlar rafleiðslur, yfirspenna og margt fleira geta valdið hættu á eldsvoða sem geta verið lífshættulegir.

Notkunarmöguleikar:
Utanborðsmótorar (undir hlífðarkápu), í rafmagns- og rafhlöðugeymslum hjólhýsa og húsbíla, í rafmagnstöflum og öðrum minni rýmum þar sem eldsupptök geta orðið. Allt eru þetta rými sem mikilvægt er að verja fyrir eldsvoðum.

Dæmi um notendur og verðlaun:
MAUS er notað af ýmsum tryggingafyrirtækjum, t.d. Länsförsäkringar í Svíþjóð. Tæknin er í notkun hjá Fyrirtækjum á borð við Jula, Dafgårds, Pfizer, Amazon og fleiri. MAUS Stixx PRO fékk nýsköpunarverðlaun í Frakklandi og verðlaun sem besta nýjung á raftækjamarkaði á Elmässan í Stokkhólmi. Settu upp MAUS Stixx PRO núna til að öðlast góðan nætursvefn.

12.990 kr.

Vörunúmer:1350-1

Tæknin að baki MAUS Stixx Pro

Eldvarnir þróaðar fyrir geimferðir

Fasta efnið samanstendur aðallega af kalíumsameindum. Kalíumsindurefni eru mjög virk og trufla efnabruna með því að hlutleysa vetnis-, súrefnis- og hýdroxíðsindurefni í eldinum. Þar sem agnúðar innihalda örsmáar agnir í gasi verða áhrifin mun skilvirkari við slökkvistarf en hefðbundin duftslökkvitæki. Fallhraði agnanna minnkar með minna þvermáli og yfirborðsflatarmálið verður stórt í hlutfalli við þyngd agnanna sem leiðir til þess að loftmótstaðan verður tiltölulega mikil í samanburði við þyngdarkraftinn. Þetta leiðir til þess að agnirnar svífa lengur og draga því úr líkum á að eldurinn skjóti aftur rótum.  Slökkvikrafturinn á þyngdareiningu er á milli 3-10 sinnum meiri en fyrir halon og koltvísýring (CO2).

Vara hefur verið sett í körfuna þína