Vöruskil
Skilaréttur
Þú getur skilað vöru innan 14 daga frá því pöntunin var afgreidd og valið inneign eða endurgreiðslu. Frá 15. degi til 30. dags er hægt að skila gegn inneign, og þá dragast 790 kr. í skilagjald frá.
- Inneign innan 14 daga kostar ekkert. Hún gildir í 12 mánuði og nýtist upp í hvaða vöru sem er á godkaup.is.
- Þegar þú verslar með inneigninni er sendingin frí.
- Ef þú velur endurgreiðslu á sama greiðslumáta dragast 790 kr. í sendingarkostnað frá upphæðinni.
- Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum, óskemmdum umbúðum.
- Þú færð skilamiða frá Póstinum í tölvupósti og greiðir ekkert burðargjald.
Gölluð eða röng vara
Ef vara reynist gölluð eða þú fékkst ranga vöru greiðir þú engin gjöld. Skráðu málið í skilagáttinni og láttu mynd fylgja, þá finnum við lausn með þér.
Skila vöru
Finndu pöntunina hér fyrir neðan og veldu hvað þú vilt gera.